Fjölbýlishúsin rísa hvert af öðru í Urriðaholti
Uppsteypa fyrstu fjölbýlishúsanna í Urriðaholti stendur yfir um þessar mundir. Búið er að steypa grunna sjö húsa með samtals rúmlega 100 íbúðum. Í einu húsanna er þegar búið að steypa þrjár hæðir og við önnur stendur mótasmíði sem hæst.
Nýju fjölbýlin einkennast af því að vera fremur lítil í sniðum, fáar íbúðir í hverjum stigagangi og að meginhluta eru þrjár íbúðarhæðir. Íbúðastærð er á bilinu 80-130 fermetrar.
Í sumar hefst svo næsta hrina bygginga fjölbýla í Urriðaholti. Um 100 íbúðir verða í þeim áfanga, sem rís í vestanverðu Urriðaholti með glæsilegu útsýni yfir Garðabæ og Faxaflóa.
Upplýsingar um staðsetningu fjölbýlishúsanna sem eru í byggingu má finna í flipa á forsíðu undir heitinu „Íbúðir til sölu.“ Upp kemur kort af Urriðaholti sem sýnir staðsetninguna og með því að smella á merki fyrir viðkomandi hús sjást nánari upplýsingar.
![Urridaholt IMG 4691](/files/images/_optimized_news/Urridaholt_IMG_4691.jpg)
![Urridaholt IMG 4658](/files/images/_optimized_news/Urridaholt_IMG_4658.jpg)
![Urridaholt IMG 4672](/files/images/_optimized_news/Urridaholt_IMG_4672.jpg)
![Urridaholt IMG 4763](/files/images/_optimized_news/Urridaholt_IMG_4763.jpg)
![Urridaholt IMG 4726](/files/images/_optimized_news/Urridaholt_IMG_4726.jpg)
![Urridaholt IMG 4699](/files/images/_optimized_news/Urridaholt_IMG_4699.jpg)