2.09.2022

Táknatréð rís á Vörðutorgi, háholti Urriðaholts

Fyrsta mannvirkið sem reis á Urriðaholti hefur nú verið sett upp aftur eftir nokkurra ára geymslu og viðgerðir. Þetta er listaverkið Táknatréð sem nú er komið upp á Vörðutorgi á háholti Urriðaholts, rétt hjá kaffihúsinu Dæinn.

IMG 8356
Táknatréð komið á sinn stað á Vörðuholti. Fyllt verður með jarðvegi að steypta stöplinum.

Táknatréð er samstarfsverkefni Gabríelu Friðriksdóttur og frönsku listamannanna Mathias Augustyniak og Michael Amzalag, einu nafni M/M. Verkið var afjúpað efst í Urriðaholti í maí 2008 og var fyrsta mannvirkið sem reis í hverfinu. Það var seinna staðsett við hús Náttúrufræðistofnunar áður en það var tekið niður til viðgerðar hjá Málmsteypunni Hellu.

Gabriela Mathias Michael
Listamennirnir, Gabríela, Mathias og Michael

Listaverkið stendur á rúmlega 15 tonna þungum steyptum stöpli og verður fyllt upp að honum með jarðvegi.

Táknatréð byggist á leturgerð sem M/M hönnuðu fyrir plötu Bjarkar Guðmundsdóttur, Medúllu sem kom út 2004. Enda lét Björk sig ekki vanta þegar listaverkið var afhjúpað.

Táknin sem Mathias og Michael sköpuðu voru notuð sem grunnur undir allt prentað efni og þrívíða hluti sem þeir unnu í samstarfi við Gabríelu fyrir Tvíæringinn í Feneyjum 2005. Í Táknatrénu er leturgerðin hins vegar þrívíð og á því eru teikningar Gabríelu mótaðar í lágmyndir eins og ávextir eða fræ.

5158 V353 V7 L
Táknin sem mynda Táknatréð er að finna á Medúllu, plötu Bjarkar, meðal annars á þessari hálsfesti hennar.

Vörðutorgi er ætlað að vera eitt mikilvægasta almenningsrýmið í Urriðaholti. Þegar frágangi þess verður lokið mun torgið verður beintengt við tröppustíginn niður að Urriðavatni og afstaða torgsins er góð með tilliti til sólar og skjóls.

Táknatréð er úr bronsi, rúmir fimm metrar á hæð. Um listaverkið sagði Gabríela í tilefni af uppsetningu þess árið 2008 að það mætti kalla „minnisvarða um möguleikana, innblásið af gjafmildi góðs samstarfs ólíkra aðila og endurspeglar þannig undirstöðu þeirrar byggðar sem rísa eigi í Urriðaholti.“

Hugmyndina að Táknatréfnu sagði Gabríela að rekja mætti til þess þegar M/M komu hingað til lands í tengslum við frönsku menningarhátíðina Pourqois Pas? snemma árs 2007. Þá hófst hugmyndavinna á bak við Tree of Signs og haldin var sýning á frumteikningum í Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ . „Þegar samstarf við Urriðaholt kom til tals og við hófum að kynna okkur hugmyndafræði hverfisins kom hún heim og saman við hugmyndir okkar. Auk þess hafði okkur alltaf langað að setja tréð upp á óbyggðu svæði,“ segir Gabríela.

Urriðaholt Táknatréð og Náttúrufræðistofnun
Um tíma var Táknatréð staðsett á hól við Hoitsveg, gegnt Náttúrufræðistofnun Íslands.

Urriðaholt ehf keypti listaverkið og kostaði uppsetningu þess. „Við hjá Urriðaholti fréttum af M/M í gegnum menningarfulltrúa Garðabæjar og fórum stuttu síðar með þá Mathias og Michael í skoðunarferð upp undir Búrfellsgjána“, sagði Sigurður Gísli Pálmason í stjórn Urriðaholts ehf um tilurð verksins. „Það er sjaldgæft að menn komist í tæri við jafn ósnortið land svo skammt frá byggð, enda hrifust þeir af náttúrufegurðinni. Skömmu síðar var ákveðið að tréð yrði fyrsta mannvirkið til að rísa á Urriðaholti. Það er skemmtilega táknrænt og gefur áþreifanleg skilaboð um gróanda og vöxt í Urriðaholti“.

Táknatréð í morgunsól 012
Táknatréð er fyrsta mannvirkið sem reis á Urriðaholti.

Gabríela sagði það besta við Táknatréð að það væri svo að segja stallalaust, ólíkt flestum listaverkum í opinberu rými. „Í slíkum rýmum finnst mér vera unnið á móti listinni með því að búa til fyrirfram ákveðinn ramma utan um allt, en þannig nær verkið sjaldan að þróast eðlilega og samsvara sér umhverfinu,“ segir Gabríela. Hún sagði þetta einnig speglast í því að leturgerðin sem notuð er í verkinu rammi ekki inn heldur skapi möguleika. „Hin formræna heimspeki og heimspekin á bak við Urriðaholt eiga vel saman. Það er að segja að vinna með möguleikum náttúrunnar og rekast ekki á hana, heldur að nota mjúk form sem mynda meira samspil”.

Tree Of Signs Th VilTree Of Signs2008 IMGL9506Tree Of Signs2008 IMGL9463
Myndir frá afhjúpun listaverksins efst á Urriðaholti í maí 2008.
IMG 8349
Þeir Kristinn E. Hrafnsson myndlistarmaður og Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hafa haft veg og vanda af staðarvali fyrir listaverkið undirbúningi uppsetningar þess.