13.05.2018

Veðurmælingastöð rís í Urriðaholti

Stór stund rann upp í Urriðaholtsskóla 11. maí sl. þegar Urriðaholt ehf, Garðabær, Veðurstofa Íslands og Háskóli Íslands undirrituðu samstarf um uppbyggingu veðurmælingastöðvar og rannsóknarmiðstöðvar á sviði sjálfbærra (blágrænna) regnvatnslausna. Ólafur Helgi Ólafsson, stjórnarformaður Urriðaholts ehf undirritaði samninginn fyrir hönd þess, Gunnar Einarsson bæjarstjóri fyrir hönd Garðabæjar, Jón Atli Benediktsson rektor fyrir hönd Háskóla Íslands og Árni Snorrason forstjóri fyrir hönd Veðurstofu Íslands.

Fullkomin veðurmælingastöð verður reist í Urriðaholti, sunnanmegin í holtinu á opnu svæði vestan við Kauptún. Stöðin og búnaður henni tengdri skapar einstakt tækifæri til rannsókna og tilrauna á landsvísu. Þar verða m.a. sérhæfð og afar nákvæm tæki til mælinga vegna sjálfbærra regnvatnslausna, svo og úrkomu á einnar mínútu fresti, í fyrsta sinn á Íslandi.

Sjálfbærum regnvatnslausnunum er beitt í Urriðaholti til að draga úr álagi á fráveitukerfi og viðhalda um leið heilbrigðum og sjálfbærum vatnsbúskap Urriðavatns. Til að koma í veg fyrir að vatnasvæði þess raskist vegna byggðarinnar er allt ofanvatn af þökum, götum og görðum (regn og snjór) látið renna niður í jarðveginn til að líkja eftir ferlum náttúrunnar. Þannig sígur vatnið í jörðu og berst til Urriðavatns og votlendisins.

Veðurmælingastöðin verður hluti af rannsóknarmiðstöð sem Háskóli Íslands heldur utan um. Ávinningurinn af uppbyggingu rannsóknarmiðstöðvarinnar felst meðal annars í þeim vísindalegu rannsóknum sem hægt verður að gera á virkni sjálfbærra regnvatnslausna. Tækifæri skapast einnig til langtímavöktunar á veðurfari sem innifelur þætti sem skipta sköpum í fráveituhönnun, t.d. regn, hiti, sólarorka og snjóalög. Þá gefur veðurmælingastöðin möguleika á miðlun veðurfarsgagna til rannsakenda sem áhuga hafa á nákvæmum veðurfarsgögnum af höfuðborgarsvæðinu.

Til að tryggja farsæla uppbyggingu blágrænna regnvatnslausna á Íslandi er þörf á meiri eftirfylgni og vöktun á veðurfari í íslensku þéttbýli samhliða því að byggja upp reynslu og þverfræðilega þekkingu á þessu sviði. Rannsóknarmiðstöðin í Urriðaholti er því mikilvægur vettvangur í því samhengi.

Samhliða þessum samningi var undirritaður þjónustusamningur milli Garðabæjar og Veðurstofu Íslands um rekstur á sjálfvirku veðurstöðinni.

Hvers vegna í Urriðaholti?

Urriðaholt er fyrsta BREEAM umhverfisvottaða hverfið á Íslandi og fyrsta hverfið þar sem sjálfbærar (blágrænar) regnvatnslausnir voru innleiddar sem aðallausn á ofanvatni til verndar Urriðavatni. Það er einnig fyrsta hverfið á heimsvísu þar sem slíkar regnvatnslausnir hafa verið innleiddar á jafn norðlægri breiddargráðu og í jafn miklum landhalla. Hverfið þykir eftirbreytnivert alþjóðlegt dæmi um farsæla innleiðingu þeirra og hefur þegar vakið athygli vegna þessa. Því þótti kjörið að nýta Urriðaholtið sem rannsóknarvettvang fyrir vísindalegar rannsóknir á blágrænum regnvatnslausnum, og miðla niðurstöðum úr þeirri vinnu jafnt innan- sem utanlands.

Undirritun í Urriðaholti blágrænar rannsóknir 1119
F.v: Hrund Andradóttir, prófessor í umhverfisverkfr. HÍ, Árni Snorrason, forstjóri Veðurstofu, Jóna Sæmundsdóttir form. umhverfisn. Garðabæjar, Gunnar Einarsson bæjarstjóri, Jón Atli Benediktsson rektor HÍ, Ólafur Helgi Ólafsson stjórnarform. Urriðaholts.
Undirritun í Urriðaholti blágrænar rannsóknir 1103
Slegið á létta strengi við undirritun samningsins. Frá vinstri Árni Snorrason, Jón Atli Benediktsson, Gunnar Einarsson og Ólafur Helgi Ólafsson.

Tengt efni